Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. maí 2017 22:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Kante: Chelsea vill vinna fernuna
Kante vill fleiri verðlaunapeninga
Kante vill fleiri verðlaunapeninga
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante, besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar segir að Chelsea munir reyna að vinna alla titla á næsta tímabili.

Franski landsliðsmaðurinn er orðinn vanur að vinna titla þar sem hann hefur orðið Englandsmeistari tvö ár í röð, með Leicester og Chelsea.

Kante vill vinna fleiri titla og stefnir á að vinna Meistaradeildina.

„Næsta tímabil verður ný áskorun þar sem við ætlum að reyna að verja titilinn, vinna báða bikarana og Meistaradeild Evrópu. Fyrir félag eins og Chelsea, viljum við vinna allt saman. Við ætlum að reyna að vinna alla titla. Þetta verður ný áskorun fyrir alla," sagði Kante.

Kante hefur verið stórkostlegur á miðju Chelsea í vetur og var hann valinn besti leikmaður deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner