Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 18. maí 2018 22:44
Þórhallur Valur Benónýsson
Brynjar: Leikurinn er í 90 mínútur
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK var að vonum léttur eftir 3-1 sigur sinna manna á Selfyssingum í Kórnum í kvöld.

„Síðasti hálftíminn var góður, fyrsta klukkutímann var þetta stöðug barátta inni á vellinum og hvorugt liðið gaf færi á sér. Þetta opnaðist svo þegar við skoruðum fyrsta og annað markið, við hefðum auðveldlega getað bætt við."

Lestu um leikinn: HK 3 -  1 Selfoss

Hafsteinn Briem, leikmaður HK fór meiddur út af vellinum eftir 20 mínútna leik. Brynjar er hræddur um að meiðslin séu alvarleg.

„Við fyrstu sýn lítur þetta ekkert sérstaklega vel út en við svosem getum sagt voða lítið fyrr en hann er búinn að sjá lækni og fara í myndatöku. Við metum það bara eftir það."

Hann sagðist ekki hafa viljað spila leikinn öðruvísi ef hann fengi að byrja upp á nýtt.

„Ég er sáttur með hvernig þetta fór fram, leikurinn er í 90 mínútur. Þetta er hvort sem það er hér eða annarsstaðar, þá er þetta stöðug barátta allstaðar á vellinum. Þetta er bara spurning um að halda einbeitingu og þá færðu þín tækifæri."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner