Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfyssinga var ekki kátur að leikslokum í Kórnum en Selfoss tapaði 3-1 gegn HK.
„Það er leiðinlegt að tapa. Mér fannst við eiga skilið að taka allavega stig út úr þessum leik."
„Það er leiðinlegt að tapa. Mér fannst við eiga skilið að taka allavega stig út úr þessum leik."
Lestu um leikinn: HK 3 - 1 Selfoss
Selfoss spiluðu öfluga vörn fyrstu 60 mínútur leiksins og svo brást stíflan með látum.
„Við spiluðum mjög vel og vorum þéttir, gerðum góða hluti. Leikurinn var mjög hraður, mikið tempó og aggressívur. Svo gerum við klaufaleg mistök í varnarleik, í raun bara samskiptaörðuleikar sem gefur þeim mark eitt og númer tvö."
Gunnar var ánægður með framlag sinna manna og kveðst sjá framfarir hjá liðinu.
„Ég er mjög ánægður með strákana og liðsheildina. Liðsheildin var betri núna en hún hefur verið og liðið var virkilega að berjast og vinna fyrir sínu en við getum ekki verið að gefa leiki í hverri einustu viku."
Athugasemdir