Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 18:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Morgunblaðið 
Bjarni spilar meiddur með KR
Þrátt fyrir að fyrirliðinn hafi spilað meiddur hefur KR verið á góðri siglingu.
Þrátt fyrir að fyrirliðinn hafi spilað meiddur hefur KR verið á góðri siglingu.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, spilar meiddur með liðinu þessa dagana en hann er tognaður á nárangum hægra megin. Eftir því hefur verið tekið að Bjarni notar aðeins vinstri fótinn í spyrnur sínar, sinn veikari fót.

„Ég tognaði fyrir leikinn gegn ÍBV og hef bara ekkert náð mér. Ég get alveg spilað en get bara ekki notað hægri löppina," segir Bjarni við Tómas Þór Þórðarson í Morgunblaðinu.

KR-ingar hafa unnið alla fjóra leikina sem Bjarni hefur spilað meiddur. Hann viðurkennir þó að sennilega væri nú best að hvíla sig aðeins.

„Mótið er stutt og spilað hratt og maður vill vera með. Þetta hefur líkað gengið bærilega. Svo lentum við líka í því að Jónas Guðni er tæpur og Brynjar bara að koma til baka. Við erum því í smá meiðslabasli þannig að ég tók þetta svolítið á mig," segir Bjarni sem líklega verður hvíldur í bikarleik gegn KR á morgun.
Slapp
banner
banner