Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 18. júní 2013 11:29
Magnús Már Einarsson
Blackpool selur Ince ekki nema fáránlegt tilboð berist
Paul Ince, stjóri Blackpool, ætlar ekki að selja Thomas Ince son sinn nema "fáránlegt tilboð" komi inn á borð hjá félaginu.

Liverpool reyndi að krækja í Ince í janúar síðastliðnum en án árangurs. Nokkur félög hafa sýnt honum áhuga í sumar en Blackpool hefur ekki hug á að selja.

,,Við vissum að það yrði mikill áhugi á Thomas og það hefur komið á daginn," sagði Paul Ince.

,,Eftir að hafa talað við hann þá er ljóst að hann mun glaður spila hér áfram. Ég er ekki að segja að hann vilji ekki spila í úrvalsdeildinni því hann mun gera það einn daginn."

,,Við viljum halda honum en ef einhver kemur með fáránlegt tilboð þá verðum við að skoða það."

Slapp
banner
banner
banner
banner