Sjöundu umferð Pepsi-deildarinnar lýkur með leik Vals og ÍBV á Vodafone-Hlíðarenda klukkan 18:00.
Valur fer upp í annað sæti deildarinnar með sautján stig ef liðinu tekst að vinna sigur. Valur er með fjórtán stig í fjórða sæti, þremur stigum á undan ÍBV.
Valur fer upp í annað sæti deildarinnar með sautján stig ef liðinu tekst að vinna sigur. Valur er með fjórtán stig í fjórða sæti, þremur stigum á undan ÍBV.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Fjórar breytingar eru á liði Vals frá útisigrinum gegn Þór í síðustu umferð. James Hurst tekur út leikbann og þeir Andri Fannar Stefánsson, Matthías Guðmundsson og Kolbeinn Kárason fara einnig úr byrjunarliðinu.
Inn koma Jónas Tór Næs, Þórir Guðjónsson, Björgólfur Takefusa og Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði sem var í banni á Akureyri.
Ein breyting er á byrjunarliði ÍBV frá síðasta deildarleik, sigrinum gegn Fylki. Aaron Spear sest á bekkinn og Ragnar Pétursson kemur inn.
Byrjunarlið Vals:
1. Fjalar Þorgeirsson (m)
3. Jónas Þór Næs
5. Magnús Már Lúðvíksson
7. Haukur Páll Sigurðsson
8. Rúnar Már Sigurjónsson
10. Björgólfur Takefusa
14. Arnar Sveinn Geirsson
15. Iain Williamson
17. Þórir Guðjónsson
19. Stefán Ragnar Guðlaugsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
Byrjunarlið ÍBV:
1. David James (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Matt Garner
4. Gunnar Már Guðmundsson
6. Gunnar Þorsteinsson
11. Víðir Þorvarðarson
15. Tonny Mawejje
17. Ragnar Pétursson
19. Arnór Eyvar Ólafsson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
30. Ian Jeffs
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |




