Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 18. júní 2013 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: Spánn mætir Ítalíu í úrslitum
Spánverjar mæta Ítölum í úrslitaleik Evrópumóts landsliða skipaða leikmönnum 21 árs og yngri í dag klukkan 16.

Margir leikmenn eru komnir yfir 21 árs aldurinn en reglurnar miða við að leikmenn séu á 21. áldursári eða yngri þegar undankeppni hefst.

Ítalir voru í riðli með Englendingum, Norðmönnum og gestgjöfum Ísrael og komust upp í undanúrslit mótsins ásamt þeim norsku.

Spánverjar voru í dauðariðlinum með Hollendingum, Þjóðverjum og Rússum. Holland komst upp með Spáni eftir 3-2 sigur á Þjóðverjum.

Ítalir lögðu þá Hollendinga í undanúrslitum á frekar ósannfærandi hátt á meðan Spánverjar skoruðu þrjú gegn Norðmönnum.

16:00 Ítalía - Spánn
Slapp
banner