Mario Gomez, framherji Bayern Munchen í Þýskalandi, segir að Fiorentina og Juventus ætli sér að bera víurnar í hann.
Gomez fékk ekki að spila eins mikið og hann hafði óskað sér, en Mario Mandzukic kom til félagsins síðasta sumar og fékk mikla athygli fram á við hjá Jupp Heynckes þjálfara liðsins.
Líklegt er að Gomez fari frá Bayern í sumar, en hann vill fara til félags sem spilar í Meistaradeild Evrópu.
Atletico Madrid, Fiorentina, Juventus og Manchester City eru öll talin vera á eftir Gomez, en Fiorentina og Juventus hafa mestan áhuga.
,,Fiorentina og Juventus eru mjög áhugasöm um leikmanninn, en það verður farið yfir þessi mál þegar hann kemur til baka úr fríi og þá finnum við bestu lausnina fyrir Gomez," sagði talsmaður Gomez.





