Varnarleikur Þórs hefur skiljanlega verið talsvert til umræðu enda liðið fengið á sig 20 mörk í fystu sjö umferðum Pepsi-deildarinnar. Aðalsteinn Ingi Pálsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, segir að menn norðan heiða séu þó ekki með miklar áhyggjur.
„Auðvitað höfum við ekki stórar áhyggjur af þessu. Ef við tökum það hvernig liðið hefur verið að spila almennt þá vantar ekki mikið upp á svo vörnin farið að smella saman. Við höfum engar stórkostlegar áhyggjur," segir Aðalsteinn.
Ummæli Páls Viðars Gíslasonar í viðtali eftir 4-1 tapið gegn Fram hafa vakið nokkra athygli. Þar segir hann að menn eigi fyrst og fremsta að skella skuldinni á sig sjálfan, að hann sé ekki nógu klár í varnarfræðum. Aðalsteinn telur að Páll sé þó klárlega alveg nægilega klókur til að leysa þetta vandamál.
„Er hann ekki bara það klókur að kasta þessu upp í fjölmiðla til að villa um fyrir ykkur? Ég held að Palli Gísla sé gríðarlega klókur í fótboltafræðum almennt. Það er allavega mín trú. Ég hef engar áhyggjur af öðru en að hann eigi eftir að samstilla aftari hluta liðsins alveg eins og hann hefur stillt sóknina hjá okkur."
Aðalsteinn segir að þjálfarasætið hjá Þór sé ekki heitt. „Nei langt í frá. Liðið gæti ekki verið í betri höndum. Ég get lofað þér því. Auðvitað ætlum við okkur að fara að sýna meira. Menn hafa séð að leikurinn hjá okkur hefur verið að batna stórlega frá fyrstu umferð. Ég held að við munum sýna klærnar enn meira," segir Aðalsteinn.
„Ég held til dæmis að Stjörnumenn hlakki ekki til að koma hérna norður á sunnudaginn eftir bikarleikinn sem þeir spiluðu hérna. En við tökum vel á móti þeim, það er ekki það."



