Haukur Páll Sigurðsson færðist í miðvörðinn hjá Val eftir að Stefán Ragnar Guðlaugsson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í 1-1 jafnteflinu gegn ÍBV. Hann viðurkenndi að hafa ekki búist við því að leysa þessa stöðu í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 ÍBV
„Atli Eðvaldsson þjálfaði mig hjá Þrótti og ég spilaði miðvörð hjá honum. Hann kenndi mér þessa stöðu og ég kann hana alveg í dag," sagði Haukur Páll.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var alls ekki sáttur við tæklingu sem Haukur Páll átti á Ragnar Pétursson í seinni hálfleik. Sagði Hermann í viðtali við Fótbolta.net að hann þyrfti að kenna Hauki að tækla.
„Ég lærði af honum, ég horfði á hann tækla upp sinn feril. Það er bara þannig, þá kann hann bara sjálfur að tækla. Þetta var bara gult spjald og málið er dautt. Ég veit ekki hvort hann hafi verið að biðja um rautt spjald, ég held að hann sjálfur hefði verið trylltur að fá rautt spjald á þetta ef hann væri að spila."
„En já ég sem ungur drengur horfði á hann tækla um allan völl. Eigum við ekki að segja að þetta sé honum að kenna þá," sagði Haukur Páll en hægt er að horfa á viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
























