Stuðningsmenn Newcastle eru brjálaðir eftir að greint var frá því í fyrradag að Joe Kinnear sé að taka við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Kinnear var knattspyrnustjóri Newcastle í nokkra mánuði tímabilið 2008-2009 áður en hann neyddist til að hætta af heilsufarástæðum.
Kinnear var mikið í sviðsljósinu á þessum tíma en hann reifst meðal annars við fjölmiðlamenn og kallaði síðan Charles N'Zogbia meðal annars Charles Insomnia í viðtali.
Nöfnin hjá leikmönnum Newcastle eru að flækjast fyrir Kinnear eins og mátti sjá í kostulegi viðtali við hann á Talksport í gær.
Kann ekki nöfn leikmanna:
Þar kallaði hann leikmenn Shola Amenobee, Yohan Kebab og Hatem Ben Afre en ekki Shola Ameobi, Yohan Cabaye og Hatem Ben Arfa.
Stuðningsmenn Newcastle hafa hraunað yfir Kinnear á Twitter í kjölfarið og þetta virðist einnig fara í taugarnar á leikmönnum.
,,Wow hafðu nafnið mitt að minnsta kosti rétt," skrifaði Sammy Ameobi bróðir Shola á Twitter í gærkvöldi.
Segist vera gáfaðari en stuðningsmennirnir:
Það var þó ekki einungis framburður á nöfnum sem vakti athygli í viðtalinu við Kinnear í gærkvöldi því hann sagðist meðal annars hafa fengið Tim Krul til Newcastle á sínum tíma. Það furðulega er að Krul kom til Newcastle árið 2005 en Kinnear hóf störf hjá félaginu 2008.
Þá var hann spurður út í gagnrýni stuðningsmanna. ,,Ég er klárlega gáfaðari en þeir," svaraði Kinnear og bætti við að hann sé vel tengdur í fótboltaheiminum.
,,Ég heyrði heimskuleg ummæli um það hvað ég get boðið upp á? Ég get opnað dyrnar hjá hvaða stjóra sem er í heiminum. Ég hef eytt lífi mínu í að tala vikulega við Alex Ferguson, hvað myndir þú geta gert? Ég get tekið upp símann hvenær sem er og talað við Arsene Wenger eða hvaða stjóra sem er í hvaða deild sem er," sagði Kinnear.
Hér að neðan má hlusta á viðtalið á Talksport í heild.



