Thiago Alcantara, leikmaður Barcelona, skoraði fullkomna þrennu fyrir U21-landslið Spánar sem vann 4-2 sigur á Ítalíu í dag. Eitt með skalla, annað með vinstri og þriðja markið með hægri fæti. Thiago hefur verið orðaður við Manchester United og ljóst eftir þessa frammistöðu að margir stuðningsmenn United þrá að fá hann á Old Trafford.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.


