Heimild: Heimasíða Aston Villa
Aston Villa hefur keypt framherjann Nicklas Helenius frá Álaborg.
Þessi 22 ára gamli Dani skrifaði undir þriggja ára samning við Aston Villa.
Þessi 22 ára gamli Dani skrifaði undir þriggja ára samning við Aston Villa.
,,Nicklas er ungur strákur en hann er landsliðsmaður sem hefur skorað mikið fyrir Dani. Hann mun sanna sig í ensku úrvalsdeildinni," sagði Paul Lambert stjóri Aston Villa.
Helenius varð næst markahæstur í dönsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili með 15 mörk.




