Stuart Pearce mun ekki halda áfram sem þjálfari U21 árs landsliðs Englendinga en enska knattspyrnusambandið staðfesti þetta í dag.
U21 árs liðið náði ekki í stig í lokakeppni EM á dögunum og frammistaða liðsins olli miklum vonbrigðum.
U21 árs liðið náði ekki í stig í lokakeppni EM á dögunum og frammistaða liðsins olli miklum vonbrigðum.
Pearce hefur stýrt U21 árs landsliðinu frá því árið 2007 en nú eru dagar hans í starfi taldir.
,,Pearce hefur staðið sig mjög vel með liðið í undankeppnum en eftir vonbrigðin á síðustu tveimur mótum teljum við að það sé kominn tími á að skipta um þjálfara," sagði David Bernstein formaður enska knattspyrnusambandsins.
Pearce var stjóri hjá Manchester City áður en hann tók við U21 árs liðinu árið 2007.



