Orðrómur er í gangi um að Þórður Þórðarson sé hættur sem þjálfari ÍA. Fótbolti.net hefur ekki náð að fá þetta staðfest þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Fótbolti.net hefur reynt að ná í Þórð Guðjónsson framkvæmdastjóra, Inga Fannar Eiríksson formann, Örn Gunnarsson formann afrekssviðs, Hróðmar Halldórsson stjórnarmann og Þórð Þórðarson sjálfan en enginn þeirra hefur svarað síma.
Þórður tók við þjálfun ÍA um mitt sumar 2009 þegar Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir létu af störfum. Hann kom liðinu upp í Pepsi-deildina þar sem liðið náði góðum árangri í fyrra en illa hefur gengið það sem af er þessu tímabili.



