Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Gary Martin leikmaður KR:
Leiðinlegt að sjá Þórð hætta með ÍA #FrábærNáungi
Hlynur Magnússon fótboltaáhugamaður:
Jóhannes Karl sem spilandi þjálfari á Skaganum. Er það ekki eitthvað sem væri þeim líkt? #fótbolti #ía
Jón Kári Eldon leikmaður KV:
En Luka sjálfur Hax Kostic ? Væri til í að sjá hann í Pepsi. #ÍA
Jóhann Laxdal leikmaður Stjörnunnar:
Einn krakki kallaði til Daníels meðan við vorum að þjálfa í morgun " Hey Danni þú ert ekki Jói " #barnagáfur #210 #hreinskilni
Hörður Snævar Jónsson ritstjóri á 433.is:
Víkingur Ólafsvík er með eitt stig eftir 7 leiki en í góðum séns á að falla ekki! Sirka 15 stig munu duga til að falla ekki #fotbolti
Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Hauka:
Verður spennandi í kvöld á Hlíðarenda. Ætti að verða troðfullt og mikil stemning. Pirraður yfir djöfullegum leiktíma kl 18!
Hjalti Þór Hreinsson fótboltaáhugamaður:
Palli Gísla þarf að fara að taka wildcardið á vörnina sína. Tæplega þrjú mörk fengin á sig að meðaltali í leik #fantasy #fótbolti #ofmikið
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV:
Hversu stórt er Spánn að fara að vinna Tahiti í þessari Álfukeppni. Þvílíkt grín landslið. #álfukeppnin
Guðjón Baldvinsson leikmaður Halmstad:
Nýtt heimsmet í possesion verdur sett a fimmtudag, Spánn - Tahiti! Their eru bara a thessu móti...
Cristiano Acconci:
Nöfn leikmanna í Serie A sem eru eins og matur #yohankebab Sjá tengil


