Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. júní 2017 08:00
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Eyjabita - Harðfiskur í verðlaun í 8. umferð
Mynd: Eyjabiti
Úr leik í Pepsi-deildinni.
Úr leik í Pepsi-deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Í dag og á morgun fer fram 8. umferðin í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita. Stigahæsti þátttakandinn í 8. umferð fær harðfisk í verðlaun frá Eyjabita. Það sama verður uppi á teningnum í 8. umferðinni um næstu helgi.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Markaðurinn er opinn til klukkan 16:00 í dag, klukkutíma áður en fyrsti leikur í 8. umferð fer fram.

8. umferð:

Í dag:
17:00 Grindavík-ÍBV (Grindavíkurvöllur)
17:00 Valur-KA (Valsvöllur)

Á morgun
19:15 ÍA-Fjölnir (Norðurálsvöllurinn)
19:15 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
19:15 Víkingur Ó.-Stjarnan (Ólafsvíkurvöllur)
20:00 KR-Breiðablik (Alvogenvöllurinn)

Er kominn tími á að nota wildcardið?
Ein frí skipting er í boði á milli umferða en einnig er hægt að nota Wildcard einu sinni á tímabili. Wildcard gerir þér kleift að gera ótakmarkaðar ókeypis skiptingar í einni umferð.

Til að nota wildcardið þá stillirðu einfaldlega upp þeim breytingum sem þú vilt gera á markaðnum. Til að staðfesta breytingarnar smellirðu svo á "Nota wildcard" í stað þess að ýta á "Staðfesta kaup". Við þetta strokast út þau mínusstig sem fengist hefðu fyrir breytingarnar.

Eftir að wildcard hefur verið virkjað er hægt að gera ótakmarkaðar breytingar þar til næsta umferð byrjar.
Athugasemdir
banner
banner
banner