banner
   sun 18. júní 2017 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Le Parisien: Liverpool ætlar að fá Aubameyang
Fer Aubameyang til Englands?
Fer Aubameyang til Englands?
Mynd: Getty Images
Franski fjölmiðillinn Le Parisien segir að Liverpool hafi áhuga á því að kaupa Pierre Emerick Aubameyang frá Borussia Dortmund.

Það yrði stórfréttir ef Aubameyang myndi ganga í raðir Liverpool, en hann þekkir Jurgen Klopp, stjóra liðsins vel.

Klopp keypti Aubameyang til Dortmund á sínum tíma.

Liverpool vill einnig kaupa Mohamed Salah frá Roma, en ef Liverpool tækist að landa bæði Aubameyang og Salah, þá yrði liðið án efa með eina rosalegustu sóknarlínu heims.

Hinn 27 ára gamli Aubameyang er með samning hjá Dortmund til 2021, en búist er við því að hann sé á förum í sumar.

Hann hefur verið orðaður við franska stórliðið Paris Saint-Germain, en talið er að Dortmund vilji 70 milljónir evra fyrir hann.

Aubameyang var markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinum með 31 mark í 31 leik.


Athugasemdir
banner
banner