Portúgal og Mexíkó skildu jöfn í fyrri leik dagsins í Álfukeppninni.
Portúgal var með sigurinn í hendi sér eftir mark frá bakverðinum Cedric á 86. mínútu. Hann kom Portúgölum í 2-1.
Það virtist allt benda til þess að Portúgal væri þar að klára leikinn, en í uppbótartíma jafnaði Hector Moreno og tryggði Mexíkó stig.

Í fyrri hálfleik náði varnarmaðurinn Pepe að skora fyrir Portúgal, en markið var dæmt af með hjálp myndbandsdómgæslu.
Pepe setti boltann í markið eftir að skot Cristiano Ronaldo hafði farið í slána, en aðstoðardómarinn var ekki viss og lyfti ekki flaggi sínu. Dómari leiksins bað því um að myndbandsdómarar myndu líta á atvikið og eftir það var markið dæmt af.
Myndbandsdómarar verða notaðir á heimsmeistaramótinu í Rússlandi á næsta ári og því er hún einnig notuð í Álfukeppninni.
Contrasting emotions for Pepe within the space of a minute after his strike was ruled out by the VAR.
— Squawka News (@SquawkaNews) June 18, 2017
❌ pic.twitter.com/4u4Jfizp9M
Æ hvað þessir myndbandsdómar taka allt stuð og ryþma úr leikjum #fotboltinet #álfakeppnin #álfukeppnin
— Steingrímur Sævarr (@frettir) June 18, 2017
Þessir myndbandsdómarar er eitthvert mesta bull sem hefur komið fram í fótboltanum! #Fotboltinet
— Sigurpáll Árnason (@sigurpalla) June 18, 2017
Athugasemdir