Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, er staddur í Rússlandi að fylgja íslenska landsliðinu eftir.
Hann segir að sigurinn gegn Argentínu sé sögulegur.
Hann segir að sigurinn gegn Argentínu sé sögulegur.
„Þetta er einn af bestu úrslitum Íslands frá upphafi. Að gera jafntefli gegn tvöföldum heimsmeisturum Argentínu í fyrsta leik á HM, liði sem er með besta leikmann heims innanborðs. Það er varla hægt að toppa þetta," segir Guðmundur.
„Þegar við töluðum við leikmenn Íslands fyrir leikinn þá fundum við þá trú sem þeir höfðu á þessa verkefni. Þeir trúðu því sjálfir að þeir gætu unnið. Allt skipulag gekk fullkomlega upp."
Guðmundur hefur verið lengi í bransanum en bjóst aldrei við því að hann myndi einn daginn fylgja eftir Íslandi á HM.
„Þetta er algjör toppur. Nú fer að nálgast 30 árin sem ég hef verið í þessu og að hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þessu liði síðustu árin. Manni grunaði þetta ekki þegar maður var að byrja í djobbinu. Liðið er komið á meiriháttar stað og mér sýnist allar forsendur fyrir því að þetta geti haldið áfram."
Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir