Háværir orðrómar hafa verið á kreiki um yfirvofandi brottför Eden Hazard, kantmanns Chelsea.
Real Madrid er meðal áhugasamra félaga og vill Hazard ekki útiloka neina framtíðarmöguleika.
„Ef Real Madrid vill mig þá vita þeir hvað þeir þurfa að gera," sagði Hazard, samkvæmt spænska slúðurmiðlinum Marca.
„Hef ég áhuga á þeim? Kannski. Ef ég verð áfram hjá Chelsea þá verður liðið að gera betur en á síðasta tímabili.
„Ég hef unnið allt með Chelsea og stend í þakkarskuld við félagið. Ég vil sjá hvað gerist í sumar, ég vil sjá hvort stjórinn verði áfram eða fari."
Athugasemdir