Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. júní 2018 10:25
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Allen framlengir við Stoke (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Velski landsliðsmaðurinn Joe Allen er búinn að framlengja samning sinn við Stoke City til fjögurra ára.

Allen heldur tryggð við félagið þrátt fyrir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.

Búist er við að margir leikmenn yfirgefi Stoke í sumar en Allen hefur verið lykilmaður frá komu sinni fyrir tveimur árum.

Allen er 28 ára gamall og kom til félagsins frá Liverpool. Ljóst er að hann verður að eiga gott tímabil til að Stoke geti komist beint aftur upp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner