Íslenski landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason birti í dag myndband á Instagram þar sem hann sést klobba Jón Daða Böðvarsson með skemmtilegri hælspyrnu.
Atvikið átti sér stað í upphitun fyrir leikinn gegn Argentínu í Moskvu á laugardaginn.
Ari kom inn á sem varamaður á 75. mínútu í leiknum og spilaði síðasta korterið á kantinum.
Ari biður Jón Daða afsökunar á klobbanum á léttu nótunum á Instagram í dag.
BBC náði atvikinu á myndband og Ari birti það.
Hér að neðan má sjá færsluna hjá Ara.
Athugasemdir