Nýjasta hárgreiðsla Brasilíumannsins Neymar er umfjöllunarefni flestra dagblaða Brasilíu. Fast er skotið á Neymar eftir svekkjandi 1-1 jafntefli gegn Sviss í gær.
Steven Zuber jafnaði fyrir Sviss eftir að Philippe Coutinho kom Brasilíu yfir.
Sumir fjölmiðlar tala um að hárgreiðsla Neymar hafi verið betri en frammistaða hans á vellinum.
'Hárgreiðsla 10 - Fótbolti 0' var fyrirsögn blaðsins Extra en Zero Hora líkti greiðslunni við páfagauk.
„Hann kom til leiks eins og páfagaukur en hann söng ekki," segir blaðið.
Brasilía mætir Kosta Ríka á föstudag.
Athugasemdir