Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. júní 2018 15:10
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Alex til Dijon (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franska félagið Dijon hefur gengið frá kaupunum á Rúnari Alexi Rúnarssyni sem kemur frá FC Nordsjælland.

Rúnar Alex er 23 ára og skrifar undir fjögurra ára samning við félagið, sem endaði í ellefta sæti frönsku deildarinnar.

Franska félagið er búið að staðfesta félagaskiptin og bauð Rúnar Alex velkomin, með tilheyrandi stafsetningarvillu.

Rúnar hefur verið aðalmarkvörður Nordsjælland síðasta árið og verður í samkeppni við Baptiste Reynet um byrjunarliðssæti.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner