Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 21. júní 2018 11:59
Birgir Viðar Halldórsson
Uppboð á HM málverki Tolla
Mynd: Tolli
Uppboðinu hefur verið framlengt til kl. 12:00 fimmtudaginn 21. júní vegan bilunar sem var í pósti.

Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli taka höndum saman nú á meðan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi stendur og bjóða upp þrjú málverk eftir Tolla hér á vefnum. Verkin eru merkt HM 2018 og aðeins verða þessi þrjú málverk máluð í þessum stíl.

Þetta er í þriðja sinn sem Fótbolti.net stendur fyrir slíkum uppboðum og öll upphæðin mun renna til Parkinson samtakanna að þessu sinni.

Fyrsta myndin sem er boðin upp er í tengslum við fyrsta leik Íslands á HM gegn Argentínu á laugardaginn. Hún er í stærðinni 60x60 cm.

Uppboðið er hafið hér á vefnum. Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].

Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boði en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða í þetta fyrsta verk er fimmtudaginn 21. júní klukkan 12:00

Hæsta boð: 252.000,-

Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner