Fjölmiðlamaðurinn Michael Place sem starfar fyrir fjölmiðilinn, Xinhua í Kína lenti heldur betur í athyglisverðu atviki þegar hann tók viðtal við stuðningsmann Íslands fyrir utan Spartak Stadium í Mosvku fyrir leik Íslands og Argentínu.
Viðmælandinn sem um ræðir er Guðmundur Örn Jóhannsson, en Guðmundur er faðir landsliðsmannsins Jóhanns Berg en eins og gefur að skilja hafði Place ekki hugmynd um það.
Viðmælandinn sem um ræðir er Guðmundur Örn Jóhannsson, en Guðmundur er faðir landsliðsmannsins Jóhanns Berg en eins og gefur að skilja hafði Place ekki hugmynd um það.
Michael Place spurði Guðmund út í möguleika Íslands þar svarar Guðmundur um möguleikana en segir síðan seinna í svarinu vera spenntur fyrir því að sjá son sinn spila.
Hægt er að sjá viðtali við föður Jóhanns Bergs hér að neðan.
Xinhua journalist Michael Place talks to an Iceland fan who happens to be mainstay player Gudmundsson's father. Later, Iceland secures a historic draw with World Cup favorite Argentina. Imagine how proud the father would be! pic.twitter.com/Kdra1djbjC
— Xinhua Sports (@XHSports) June 16, 2018
Athugasemdir