fös 18. ágúst 2017 19:50
Brynjar Ingi Erluson
Inkasso-deildin: Þór og Fram skildu jöfn
Ivan Bubalo bjargaði stigi fyrir Fram.
Ivan Bubalo bjargaði stigi fyrir Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór 2 - 2 Fram
1-0 Kristján Örn Sigurðsson ('19 )
1-1 Sigurpáll Melberg Pálsson ('33 )
2-1 Gunnar Örvar Stefánsson ('48 )
2-2 Ivan Bubalo ('76 )

Þór og Fram gerðu 2-2 jafntefli í 17. umferð Inkasso-deildar karla í kvöld en leikið var á Akureyri. Fram kom tvisvar til baka í leiknum.

Varnarjaxlinn Kristján Örn Sigurðsson kom Þór á bragðið á 19. mínútu áður en Sigurpáll Melberg Pálsson jafnaði metin á 33. mínútu leiksins.

Gunnar Örvar Stefánsson kom Þór aftur yfir í byrjun síðari hálfleiks en Ivan Bubao jafnaði leikinn þegar fimmtán mínútur voru eftir.

Lokatölur því 2-2 en Þór er í 6. sæti með 27 stig á meðan Fram er í 8. sæti með 23 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner