Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari HK, var eðlilega svekktur eftir 2-1 tap gegn Þrótturum í Inkasso-deildinni i kvöld. Viktor Jónsson skoraði umdeilt sigurmark undir lokin.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 HK
HK hafði unnið síðustu fimm leiki sína í deildinni og voru farnir að blanda sér í toppbaráttuna.
„Svekkjandi að hafa tapað þessum leik því við lögðum ansi mikið í hann. Mér fannst við geta hafa gert aðeins meira í fyrri hálfleiknum því Þróttararnir náðu tökum á þessu í seinni hálfleik," sagði Jóhannes Karl við Fótbolta.net.
„Við erum að vinna okkur saman sem hópur í ákveðna átt en það var framhald af því í dag en því miður voru úrslitin ekki okkur í hag."
Viktor virtist brjóta af sér í aðdraganda sigurmarksins en Jóhannes var ósáttur við dómgæsluna í því atviki.
„Mér fannst þetta vera annað gult spjald. Það leit þannig út fyrir mér en dómarinn mat það öðruvísi. Það er eitt atvik sem ég er virkilega svekktur yfir, sem var brot og bakhrinding í öðru markinu og það skilur að í þessum leik í dag. Það að fjórir dómarar geti ekki séð þetta, þar sem mér fannst þetta augljóst brot."
Hann útilokar ekki möguleika liðsins á að blanda sér í efri hlutann en segir þó að menn séu pollrólegir.
„Það er alltaf möguleiki og frábær þrjú lið á toppnum sem eru vel mönnuð og með ákveðna forystu en við erum pollrólegir og höldum áfram að vinna í okkur sjálfum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir