Liverpool hefur hafnað nýju tilboði frá Barcelona í hinn brasilíska Philippe Coutinho.
Tvennum sögum fer af því hvað tilboðið hljóðaði upp á. Sumir fjölmiðlar segja að það hafi verið 118 milljónir punda (129 milljónir evra) á meðan aðrir segja 114 milljónir punda (125 milljónir evra)
Tvennum sögum fer af því hvað tilboðið hljóðaði upp á. Sumir fjölmiðlar segja að það hafi verið 118 milljónir punda (129 milljónir evra) á meðan aðrir segja 114 milljónir punda (125 milljónir evra)
Þetta er þriðja tilboð Barcelona í Coutinho sem Liverpool hafnar.
Liverpool hafnaði einnig beiðni Coutinho um sölu frá félaginu í síðustu viku. 13 dagar eru í að félagaskiptaglugginn loki og Liverpool stendur áfram fast á því að Coutinho verði ekki seldur til Barcelona.
Coutinho hefur ekki komið við sögu í byrjun tímabils með Liverpool. Fyrir leikinn gegn Watford um síðustu helgi var sagt að hann væri meiddur í baki en tvennum sögum fer af því hvort það sé satt eða ekki.
Athugasemdir