Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. september 2014 14:22
Elvar Geir Magnússon
Di Maria: Van Gaal stór ástæða fyrir því að ég kom
Di Maria fyrir utan æfingasvæði Man Utd.
Di Maria fyrir utan æfingasvæði Man Utd.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria, leikmaður Manchester United, viðurkennir að möguleikinn á að vinna undir Louis van Gaal hafi spilað stóra rullu í þeirri ákvörðun að fara frá Real Madrid og á Old Trafford.

„Van Gaal á stóran þátt í því að ég kom hingað. Hann var einn af þeim fyrstu sem töluðu við mig um að koma. Stjórinn á alltaf síðasta orðið varðandi leikmenn sem hann vill og ég er honum mjög þakklátur fyrir að vera leikmaður United," segir Di Maria sem var frábær í 4-0 sigri gegn QPR síðustu helgi.

„Ég þurfti á tilbreytingu að halda og vinn að því að bæta mig á hverjum degi. Ég mun reyna að gera mitt besta í hverjum leik. Manchester United reynir að vaxa. Það var engin draumabyrjun á tímabilinu en svona gerist í boltanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner