Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 18. september 2014 16:31
Elvar Geir Magnússon
Felix Magath rekinn frá Fulham (Staðfest)
Felix Magath hefur verið rekinn.
Felix Magath hefur verið rekinn.
Mynd: Getty Images
Þjóðverjinn Felix Magath hefur verið rekinn frá Fulham eins og við var búist.

Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og hefur byrjað Championship-deildina hörmulega illa, er með eitt stig eftir fyrstu sjö leikina.

Kit Symons, þjálfari U21-liðsins, tekur við stjórnartaumunum til bráðabirgða.

Magath líkti tímabilinu sjálfur við katastrófu en eftir tap gegn Nottingham Forest í gær 5-3 fékk stjórn Lundúnafélagsins nóg og var Magath rekinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner