Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. september 2014 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Martinez: Höfum verið að tala um mikilvægi Evrópukvölda
Mynd: Getty Images
Everton vann Wolfsburg 4-1 í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, var að vonum ánægður með sigurinn og þakkaði stuðningsmönnum fyrir.

,,Við höfum verið að tala um mikilvægi Evrópukvölda og það var magnað að sjá stuðninginn sem við fengum í kvöld," sagði Martinez eftir sigurinn.

,,Frammistaða okkar var frábær, rétt eins og úrslit leiksins. Wolfsburg er orkumikið lið sem pressar hátt en við leystum snilldarlega úr því.

,,Þetta var opinn leikur þar sem bæði lið reyndu að skora."

Athugasemdir
banner
banner
banner