Mánudaginn 13. október tekur Ísland á móti Hollandi í undankeppni EM á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 18:45.
Miðasala á leikinn hefst klukkan 12:00 á hádegi og fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
Holland er svo sannarlega ein af stórþjóðunum í knattspyrnuheiminum og hampaði bronsverðlaununum á HM í Brasilíu í sumar. Fjölmargar stórstjörnur eru í hollenska hópnum sem leika með mörgum af þekktustu knattspyrnufélögum heims.
Miðaverð í Forsölu
Svæði I (Rautt svæði) 5.500 kr.
Svæði II (Blátt svæði) 3.500 kr.
Svæði III (Grænt svæði) 2.500 kr.
Börn 16 ára og yngri fá 50% afslátt af miðaverði og reiknast afslátturinn af fullu verði.
Athugasemdir