Ljóst er að áhuginn er mikill fyrir leik Íslands og Hollands í undankeppni EM í næstu viku en miðasla á leikinn átti að hefjast í hádeginu.
Midi.is hrundi vegna álags og spenntir stuðningsmenn íslenska landsliðsins náðu ekki að kaupa miða fyrr en eftir um það bil hálftíma.
Síðan hefur verið inni með hléum undanfarnar mínútur.
,,Við vitum af vandamálinu og skiljum ergelsið mjög vel. Vonandi tekst midi.is mönnum að lagfæra kerfið og koma því í gang aftur sem allra fyrst," segir KSÍ á Facebook.

Eins og frægt er orðið hófst miðasala á leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti á EM klukkan 4 um nótt og í kjölfarið fékk KSÍ mikla gagnrýni.
Midi.is sendi þá frá sér yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars: ,,Sölukerfi Miði.is er sett upp til að þola gríðarlegt álag og þótt allir miðarnir á leikinn hafi selst upp á tæpum 4 klukkutímum komu engir hnökrar upp í kerfinu."
Á Twitter hafa margir lýst yfir óánægju sinni með að midi.is hafi legið niðri þegar miðarnir fóru í sölu í dag.
Miðasala í skjóli nætur er málið. #midipunkturis
— Ívar Benediktsson (@ivarben) September 18, 2014
Ég er bara farinn að halda að það hafi verið meistaraverk að hafa selt þessa Króatíu miða um hánótt.
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) September 18, 2014
Þórir Hákonar er einhversstaðar hlæjandi þessa stundina #ToldYouSo
— Andri Bjarnason (@Andrirunar) September 18, 2014
Einhvers staðar situr Þórir Hákonarson, horfir yfir Laugardalsvöllinn og segir: "I told you so!". #Miðipunkturis #Nætursalan
— Magnus Eyjolfsson (@magnusgeir) September 18, 2014
Þessar miðasölur á landsleiki eru til skammar. KSI og midi.is , takið ykkur saman í andlitinu #fotbolti #ksi #midi
— Arnar Dóri Ásgeirs. (@ArnarDori) September 18, 2014
"Midi.is þolir alveg álagið" #hálfvitarsögðu
— Sigurjón Hallgrímsso (@sigurjonhal) September 18, 2014
Athugasemdir