Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, var hundfúll eftir 1-0 tap sinna manna gegn Stjörnunni í Pepsi-deildinni í kvöld.
Víkingar fengu aragrúa af færum og hefðu hæglega getað tekið eitt til þrjú stig úr leiknum, en Óli sakaði sína menn um algeran klaufaskap.
Víkingar fengu aragrúa af færum og hefðu hæglega getað tekið eitt til þrjú stig úr leiknum, en Óli sakaði sína menn um algeran klaufaskap.
,,Ég held að þetta sé ekki óheppni. Ég held þetta sé bara klaufaskapur. Það er ekki nóg að fá færi, það þarf að klára þau, og því miður virðumst við ekki hafa nóg af gæðum til að setja þessi færi í netið," sagði Ólafur eftir leik.
,,Við skorum bara allt of lítið af mörkum og í sumar hafa þetta aðallega verið tveir menn sem eru að skora fyrir okkur. Það þurfa fleiri menn að taka það á sig að skora mörk. Ég er virkilega sáttur með spilamennskuna en ekki sáttur við það að við skulum bara ekki skora úr einhverju af þessum færum."
,,Við vorum bara miklu betra liðið í þessum leik, það er ósköp einfalt mál. En það er bara ekki nóg þegar við klárum ekki færin. Ég er drullufúll með að hafa tapað þessum leik, við áttum meira skilið."
,,Við sköpum fullt af færum og skorum ekki úr þeim og gefum þeim svo auðveld færi. Menn eru ekki vaknaðir þegar þeir setja fyrsta markið."
,,Það er nú þannig að þegar menn lenda í ofboðslega opnum færum, þá slaka þeir á einbeitningunni, þá á það að vera svo auðvelt. Það er gallinn. Guð almáttugur gerir þetta ekki fyrir okkur, menn verða að gera þetta sjálfir."
Athugasemdir