Ronaldinho gekk ekki vel í fyrsta leik sínum með Queretaro í Mexíkó.
Þessi 34 ára gamli Brasilíumaður skaut yfir úr vítaspyrnu á 61. mínútu í 1-0 tapi liðsins gegn UANL.
Ronaldinho var ekki tekinn af velli í síðari hálfleik þrátt fyrir að hafa virkað þreyttur en hann er ekki í leikæfingu.

Ronaldinho gekk til liðs við Queretaro á dögunum eftir að hafa yfirgefið herbúðir Atletico Mineiro í heimalandi sínu.
Árin 2004 og 2005 var Ronaldinho valinn besti leikmaður í heimi en síðan þá hefur ferillinn legið hressilega niður á við.
Athugasemdir