Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að sínir menn hafi verið nokkuð heppnir að vinna 1-0 sigur gegn Víkingi í Pepsi-deildinni í kvöld.
Stjarnan tók gríðarlega mikilvæg þrjú stig þökk sé marki frá Rolf Toft á 9. mínútu og er liðið því enn í bullandi toppbaráttu.
Stjarnan tók gríðarlega mikilvæg þrjú stig þökk sé marki frá Rolf Toft á 9. mínútu og er liðið því enn í bullandi toppbaráttu.
,,Þeir fengu mörg mjög góð færi Víkingarnir og við vorum heppnir að fá ekki mark á okkur. Þrjú stig, við erum mjög ánægðir, en ekki var það fallegt," sagði Rúnar eftir leikinn.
,,Við vorum bara að spila á móti hrikalega góðu liði, þannig að þetta var mjög erfitt fyrir okkur. Eftir markið okkar tóku Víkingar yfir og sköpuðu helling af góðum færum og voru beittari en við. En það er ánægjulegt að fá þrjú stig á erfiðum útivelli."
,,Mér fannst við vera hálfsofandi. Við komumst í 1-0 og gerðum það vel og gerum svo annað mark sem ég veit ekki hvort var rangstaða. En eftir það fóru menn bara í einhvern lélegan gír og við áttum ekki okkar besta leik."
,,Ingvar varði nokkrum sinnum frábærlega í fyrri hálfleik, við vorum heppnir að vera 1-0 yfir í hálfleik. Staðan gat verið öðruvísi ef Ingvar hefði ekki varið þessi frábæru færi sem þeir fengu."
Athugasemdir