Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   mán 18. september 2017 21:51
Valgerður Stella Kristjánsdóttir
Hallbera: Maður vill samt alltaf meira
Hallbera Guðný átti þrjár stoðsendingar í kvöld
Hallbera Guðný átti þrjár stoðsendingar í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já já svona bæði og við klúðruðum líka ansi mörgum færum í dag, en ég meina 8-0 er alltaf ásættanlegt" sagði Hallbera aðspurð um hvort hún væri sátt eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Ísland 8 -  0 Færeyjar

„Maður var alltaf með það á bak við eyrað að markatalan skipti máli en ég held að við getum ekki kvartað þannig séð, við höldum hreinu og skorum fullt af mörkum. Við bara verðum að halda áfram á þessari braut á móti þeim liðum sem eru slakari."

Íslenska liðið setti tóninn strax í upphafi og skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins tveggja mínútna leik. Þetta mark hafði sitt að segja um framhald leiksins að mati Hallberu: „Já, það er alltaf mjög gott þegar lið liggja svona aftarlega að brjóta þau strax niður."

Leikurinn í kvöld var fyrsti leikur Íslands eftir EM, leikmenn voru að vonum glaðir að fá flottan sigur eftir viss vonbrigði þar úti í sumar.

„Það var mjög gott að hrista af sér vonbrigði sumarsins, fullt af fólki á vellinum, það var bara mjög gaman að spila í kvöld, þetta var bara mjög skemmtilegt, ég vona bara að þessi keppni haldi áfram á svipuðum tónum."

Nánar er rætt við Hallberu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner