Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 18. september 2017 23:25
Stefnir Stefánsson
Henry: Fellaini er heiðarlegur leikmaður
Mynd: Getty Images
Thierry Henry, goðsögn hjá Arsenal og sérfræðingur hjá Sky sjónvarpsstöðinni, hrósaði Marouane Fellaini í hástert í gær fyrir vinnusemi sína inn á vellinum.

Fellaini sem hefur aldrei náð að festa niður byrjunarliðssæti hjá Manchester United síðan hann kom til félagsins árið 2013 hefur leikið prýðisvel upp á síðkastið og sá Henry sér leik á borði og hrósaði Belganum.

Jose Mourinho er sagður hafa mikið dálæti á leikmanninum, og þá aðallga fyrir dugnaðinn og vinnusemina sem hann sýnir á æfingum sem endurspeglast svo í leikjum.

Thierry Henry var í sjónvarpsveri Sky á sunnudaginn og hrósaði hann Fellaini þar.

„Þú veist alltaf hvað þú færð frá Fellaini, þú getur alltaf treyst á það að hann leggi sig 100% fram fyrir þig og gerir sitt allra besta. Hann er heiðarlegur leikmaður, hann er aldrei að fara að verða eins og Paul Scholes, við vitum það, en hann gefur sig alltaf allan í verkefnið og það er aðdáunarvert."
Athugasemdir
banner
banner
banner