Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 18. september 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho hefur aldrei tapað heimaleik á sunnudegi
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United á langan og farsælan feril að baki. Mourinho líður vel þegar lið hans eiga heimaleiki í deildinni á sunnudögum.

Manchester United sigraði Everton 4-0 á heimavelli í gær. Þar með hefur Mourinho stýrt liðum sínum í 105 deildarleikjum á heimavelli á sunnudögum án þess að tapa!

Um er að ræða heimaleiki á sunnudögum með Porto, Chelsea, Inter, Real Madrid og Manchester United.

Lið Mourinho hafa unnið 81 af þessum leikjum og 24 leiki hafa endað með jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner