banner
   mán 18. september 2017 21:39
Stefnir Stefánsson
Sjáðu markið: Frábær tilþrif hjá Viðari Erni
Viðar Örn er sjóðheitur þessa dagana.
Viðar Örn er sjóðheitur þessa dagana.
Mynd: Getty Images
Viðar Örn Kjartansson sýndi frábær tilþrif þegar lið hans Maccabi Tel Aviv heimsótti Maccabi Netanya í Ísraelsku deildinni í kvöld.

Viðar skoraði annað mark gestanna og jafnaði leikinn, en í aðdraganda marksins sýndi Viðar frábær tilþrif þar sem að hann fór ansi illa með varnarmenn Netanya áður en hann renndi boltanum snyrtilega framhjá markverði þeirra.

Viðar og félagar unnu frábæran sigur en þeir höfðu lent tvívegis undir. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar eftir fyrstu fjóra leikina með 9 stig, stigi á eftir Beitar Jerusalem og Hapoel Haifa.

Smelltu hér til að sjá markið.
Athugasemdir
banner
banner
banner