U19 ára lið kvenna lék í dag síðasta leik sinn í undanriðli sínum fyrir EM 2018.
Ísland tapaði þá 1-0 gegn Þýskalandi en bæði lið voru örugg áfram í milliriðla fyrir leikinn.
Ísland tapaði þá 1-0 gegn Þýskalandi en bæði lið voru örugg áfram í milliriðla fyrir leikinn.
„Stelpurnar okkar geta verið stoltar af sínu framlagi í dag, en þær gáfu mjög sterku heimaliði ekkert eftir," segir á heimasíðu KSÍ.
Ísland hafði unnið fyrstu tvo leiki sína í riðlinum, 7-0 gegn Svartfjallalandi og 2-0 gegn Kosóvó.
Athugasemdir