Bayern München hefur orðið fyrir áfalli en markvörðurinn Manuel Neuer meiddist aftur á vinstri fæti á æfingu í dag.
Óttast er að Neuer, sem er 31 árs, verði lengi frá en Bild segir að líklegt sé að bein hafi brotnað í fætinum.
Óttast er að Neuer, sem er 31 árs, verði lengi frá en Bild segir að líklegt sé að bein hafi brotnað í fætinum.
Hann lenti í svipuðum meiðslum á síðasta tímabili og þurfti í aðgerð.
Bayern staðfestir að Neuer verði ekki með í deildarleik gegn Schalke á morgun en félagið hefur ekki gefið meira út um meiðslin.
Bayern er með 9 stig að loknum fjórum umferðum í þýsku deildinni, stigi á eftir Dortmund og Hannover sem eru á toppnum.
Athugasemdir