Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. september 2017 21:00
Stefnir Stefánsson
Viðar Örn skoraði í sigri Maccabi Tel Aviv
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Maccabi Netanya 2-3 Maccabi Tel Aviv
1-0 Alhassane Keita ('21)
1-1 Omer Atzili ('22)
2-1 Dia Saba ('29)
2-2 Viðar Örn Kjartansson ('50)
2-3 Nick Blackman ('59)

Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum þegar lið hans Maccabi Tel Aviv heimsótti Maccabi Netanya í Ísraelsku deildinni í kvöld.

Alhassane Keita kom heimamönnum yfir með marki á 21. mínútu áður en að Omer Atzili jafnaði metin aðeins mínútu síðar.

Dia Saba endurheimti forystu heimamanna á 29. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Viðar Örn Kjartansson og jafnaði metin. Það var síðan á 59. mínútu sem að Nick Blackman tryggði gestunum 3-2 sigur, frábær endurkoma hjá Viðari og félögum eftir að hafa lent tvívegis undir í leiknum.

Viðar hefur nú skorað 10 mörk í síðustu 13 leikjum sínum í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner