Tveir leikir eru í ítölsku A-deildinni í dag. Roma mætir Chievo klukkan 16:00 en Rómverjar þurfa að rísa upp eftir svekkjandi tap gegn Juventus í stórslag í síðustu umferð. Roma hefur byrjað tímabilið afskaplega vel en lentu á vegg gegn meisturunum.
Það er leikjaálag framundan hjá Roma og spennandi að sjá hvernig þjálfarinn Rudi Garcia stillir liðinu upp í dag. Liðið mætir Bayern München í Meistaradeildinni næsta þriðjudag.
Ítalíumeistarar Juventus eru í kunnuglegri stöðu á toppi deildarinnar en liðið heimsækir botnið Sassuolo í kvöld. Heimamenn þurfa á kraftaverki að halda gegn ógnarsterku liði Juventus.
Laugardagur:
16:00 AS Roma - Chievo
18:45 Sassuolo - Juventus
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir