Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. október 2014 23:00
Alexander Freyr Tamimi
Koeman: Þetta eru ekki eðlileg úrslit
Ronald Koeman.
Ronald Koeman.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Southampton, segir að ótrúlegur 8-0 stórsigur liðsins gegn Sunderland hafi komið sér verulega á óvart.

Hollendingurinn hefur byrjað frábærlega við stjórnvölinn á St. Mary's, en toppaði sjálfan sig algerlega í dag með þessum fáránlega sigri.

,,Ég er mjög ánægður. Ég er ennþá mjög hissa því 8-0 eru ekki eðlileg úrslit," sagði Koeman á blaðamannafundi eftir leikinn.

,,Það kom mér á óvart að við værum 2-0 yfir eftir 20 mínútur og við byrjuðum leikinn ekki vel. Sunderland var betra liðið og við vorum í vandræðum."

,,Við vorum heppnir í fyrsta markinu, sjálfsmarkinu, og það gaf okkur kannski smá sjálfstraust og liðið vaknaði."

,,Þetta var besti leikur sem ég hef séð liðið spila og að var mikilvægt. Við spiluðum frábæran fótbolta og skoruðum frábær mörk."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner