Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 18. nóvember 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Giovinco gæti farið til Tottenham fyrir Lamela
Lamela gæti verið á leið til Ítalíu.
Lamela gæti verið á leið til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Juventus mun reyna að fá Erik Lamela til sín frá Tottenham Hotspur í janúarglugganum.

Sebastian Giovinco gæti farið til Spurs á móti en talið er að Inter og Roma séu einnig á eftir Argentínumanninum knáa.

Samningur Giovinco rennur út næsta sumar og ólíklegt er að hann skrifi undir nýjan samning meðan hann fær lítinn spilatíma hjá Ítalíumeisturunum.

Lamela, 22 ára, kom til Spurs fyrir rúmu ári en hefur ekki náð að festa sig almennilega í sessi eftir erfið meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner