Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. nóvember 2015 06:00
Hafliði Breiðfjörð
María Selma riftir samningi sínum við Val
María Selma í leik með Val í sumar.
María Selma í leik með Val í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Varnarmaðurinn María Selma Haseta er hætt hjá Val og því félagslaus sem stendur.

María Selma sem er tvítug gekk í raðir Vals fyrir ári síðan og spilaði 11 leiki með liðinu í sumar.

Hún kom til félagsins frá FH en er uppalin hjá Sindra á Hornafirði þar sem hún hóf feril sinn.

Hún átti eitt ár eftir af samningi sínum við Val en fékk honum rift.

Samtals hefur hún spilað 83 meistaraflokksleiki og skorað 22 mörk en hún á að baki 10 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir
banner
banner