Arsenal 2 - 0 Tottenham
1-0 Shkodran Mustafi ('36 )
2-0 Alexis Sanchez ('41 )
1-0 Shkodran Mustafi ('36 )
2-0 Alexis Sanchez ('41 )
Arsenal gerði sér lítið fyrir og skellti nágrönnum sínum og helstu erkifjendum í Tottenham í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á þessu mjög svo fína laugardegi.
Það eru alltaf mikil barátta þegar þessi lið mætast, en Tottenham þótti sigurstranlegri aðilinn fyrir leikinn.
Annað kom hins vegar á daginn því Arsenal náði að knýja fram sigur. Þýski varnarmaðurinn Shkodran Mustafi kom Arsenal yfir á 36. mínútu og Alexis Sanchez bætti við stuttu síðar, 2-0.
Seinni hálfleikurinn var markalaus og lokatölur því 2-0 fyrir Arsenal og það reyndist sanngjarnt.
Arsenal er nú með 22 stig, einu stigi minna en Tottenham. Arsenal er í fimmta sæti og Tottenham í því þriðja.
Arsenal were at it today. Ozil gets enough stick but was excellent both sides of the ball today. The re-signing of him and Alexis is vital. Can’t see it happening but crucial. Arsenal fans must be like, ‘Why can’t work like that every week?’
— Joey Barton (@Joey7Barton) November 18, 2017
Must drive you all crackers?
Athugasemdir